fbpx

Að mála baðherbergi

Að mála baðherbergi 

 

Val á efnum

Skynsamlegast er að nota vatnsþynnanlegu votrýmismálninguna Perform+ Bathroom við málun veggja í baðherbergjum. Hún hentar þó víðar, t.d. á steypta veggi, gifs, byggingaplötur, veggi og loft í eldhúsum, þvottahúsum, sjúkrahúsum, matvælaiðnaði og öðrum þeim rýmum þar sem krafist er mikils slitstyrks, þvottheldni og góðrar endingar. Perform+ Bathroom inniheldur mygluvörn og hentar því einstaklega vel í raka og votrýmum.

 

Aðferð

  1. Spartlið óslétt undirlag með Professional Våtrum votrýmisspartli.
  2. Til að fá sem besta viðloðun og þétt undirlag skal grunna ómálaða fleti og spartl með Perform+ Bathroom Primer votrýmisgrunni; þynnið hann 1:1 með vatni.
  3. Málið loks (með nýjum rúllum) tvær umferðir með Perform+ Bathroom votrýmismálningu.
  4. Ef mála á inni í sturtuklefa er ráðlegt að mála með Wapex 660 epoxýmálningu. Grunnið fyrst með Wapex 660 (þynnt mest með 10% vatni). Málið síðan yfir með einni eða tveimur umferðum af Wapex 660 (þynnt mest með 3% vatni).

Ath. Forðist að skapa raka í herberginu fyrstu dagana eftir málun á meðan að efnin er að þorna fullkomlega og ná fullri hörku og styrk.

*Nákvæmari upplýsingar um efnin má finna í tækniblöðum.

 

Heilsufars- og umhverfismál

Við pússun eða þegar málning er fjarlægð með hita geta myndast agnir og gufur sem eru skaðlegar heilsunni. Ávallt skal mála í vel loftræstu rými og nota grímur fyrir öndunarfæri ef loftræsting er ónóg. Sjá einnig upplýsingar á öryggisblaði. Ekki láta málningar­dósina standa opna meðan á verki stendur. Þrífið verkfæri strax eftir notkun. Hellið ekki málningar- og hreinsiefnaleifum í niðurföll. Skilið efnaleifum og tómum umbúðum til endurvinnslustöðva.

Tæknilegar upplýsingar

Tegund: Akrýl

Gljástig: 30%

Þurrktími: Við 23°C/50% raka; Perform+ Bathroom Primer 5 klst; Perform+ Bathroom 2 klst

Yfirmálun: Perform+ Bathroom Primer 7 klst; Perform+ Bathroom 5 klst

Þynning: Vatn

Verkfæri: Penslar, rúllur, málningarsprautur

Þekja: Perform+ Bathroom Primer 2-5 m2/l; Perform+ Bathroom 6-8 m2/l

Hreinsun: Sápuvatn

Fleiri blogg

Nýmálað á Nönnustíg

Húsið við Nönnustíg á stutt í áttræðisafmælið. Þrátt fyrir það er húsið einstaklega glæsilegt eftir viðgerðir og málun í sumar.

Karfa

0
image/svg+xml

No products in the cart.

Continue Shopping