
Þiljulakk 10%
Þiljulakk 10%
Original Panellack Matt
Original Panellack Matt er glært og silkimatt, vatnsþynnanlegt lakk til notkunar á viðarfleti, svo sem veggjaþiljur, loftaplötur, lista og karma o.fl. innanhúss. Original Panellack Matt gefur sterkt og þvottekta yfirborð með innbyggðri UV-vörn sem kemur í veg fyrir gulnun í viðnum. Lakkið má nota sem hlífðarlakk á pússningu, múrsteina og ómeðhöndlaða steypu (sjónsteypu), án þess að áferðin breytist. Mögulegt er að tóna lakkið með litarefnum til að hvítta eða bæsa við.
Á álagsfleti eins og eldhúsbekki og borðplötur er fremur mælt með Original Möbellack. Ekki skal heldur nota Original Panellack Matt á dökka eða veggfóðraða fleti.
Vörunúmer:
5210137
Vöruflokkar: Glær lökk, Lituð lökk og bæs, Málað innanhúss, Málning fyrir hús