Tree of Life, Sky Blue - Cole & Son
Tree of Life, Sky Blue – Cole & Son
Ardmore Baobab er veggfóðurslína þar sem hönnun mætir list. Hún er hylling til hins tignarlega Baobab trés í Suður-Afríku. Það er umvafið dulspeki og goðsögnum, oft kallað „lífsins tré“. Tréð er sagt hafa lækningarmátt og er í raun tákn fyrir lífsorkuna í dýralífi og gróðurfari Suður-Afríku, enda stendur það keikt í landslaginu og allar lifandi verur laðast að því. Hönnunarhúsin Cole & Son og Ardmore Ceramics hafa enn og aftur skapað dásamlega upplifun með mynstrum sem eru hugmyndarík, glaðleg og iðandi af lífi.
The Tree of Life eða Lífsins tré er endalaus uppspretta beggja hönnunarhúsa þar sem öll mynstur eru hugsuð út frá baobab-trénu. Þetta dýrlega handmálaða mynstur dregur fram gnægð ávaxta, blóma og dýra í líflegu vistkerfi Suður Afríku og heiðrar þannig ríka frásagnarlist náttúrunnar í gegnum árstíðirnar. Veggfóðrið kemur í þremur útgáfum; tvær þeirra markast af himninum, annars vegar við sólarupprás og hins vegar í hádegisbláma, en þriðja útgáfan bætir platínuljóma í bakgrunninn. Platínuafbrigðið er prentað á íburðarmikið trefjaefni sem hefur yfirbragð handslípaðs eðalmálms.
Athugið: Veggfóðrið kemur í tveggja renninga setti (breidd: 70cm + 70cm = 140 og hæð: 350cm + 350cm = 7m).
69.500 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun










