fbpx

Að mála glugga og útihurðir með ONE akrýl

Að mála glugga og hurðir úti
með ONE Door & Window Tech akrýlmálningu

 

Aðferð

Undirlagið skal vera hreint og þurrt (mest 16% raki í viði, mælið með rakamæli).

 

Nýmálun

  1. Slípið og opnið heflaðan við með sandpappír nr. 80.
  2. Gegndreypið alla fleti sem mála skal með Tinova Wood Base Oil og þá sérlega vel liggjandi við og gljúpa fleti eins og endatré.
  3. Grunnið alla fletina með Tinova Primer Exterior. Best er ef það er gert fyrir glerjun svo falsinn sé einnig grunnaður.
  4. Málið 2 umferðir með ONE Door & Window Tech.
  5. Á lítið hallandi fleti er ráðlegt að setja aukaumferð.

 

Endurmálun

  1. Þvoið allan flötinn með Original Målartvätt. Berið blönduna á með svampi eða bursta. Látið blönduna liggja á fletinum í nokkrar mínútur og skrúbbið af með blautri tusku eða bursta og vatni. Ef á fletinum er mygla, mold eða annar gróður skal þvo flötinn með þörunga- og mygluhreinsi. Skolið vel eftirá með vatni. Látið flötinn þorna vel áður en málað er.
  2. Alla gamla og lausa málningu skal fjarlægja. Slípið gljáandi fleti matta með sandpappír til að tryggja góða viðloðun. Fúa eða gráma í tré skal pússa niður eða fjarlægja með grámahreinsinum Tinova Wood Cleaner uns komið er í eðlilegan viðarlit. Eftir meðferð með grámahreinsi þarf viðurinn að þorna vel í 1-3 daga. Slípið svo með sandpappír nr. 80.
  3. Ber viður skal gegndreyptur með með Tinova Wood Base Oil. Svo er hann grunnaður með Tinova Primer Exterior.
  4. Málið tvær umferðir með ONE Door & Window Tech.
  5. Á lítið hallandi fleti er ráðlegt að setja aukaumferð.

 

Annað

Hrærið vel í dósinni fyrir notkun. Málið ekki ef sól skín beint á flötinn eða ef hætta er á regni eða daggarmyndun innan 6 klukkustunda eftir lok verks.

*Nákvæmari upplýsingar um efnin má finna í tækniblöðum.

 

Heilsufars- og umhverfismál

Ekki láta málningar­dósina standa opna meðan á verki stendur. Þrífið verkfæri strax eftir notkun. Athugið að kviknað getur í olíublautum tuskum og tvisti af sjálfu sér og verður að bleyta þær með vatni áður en þeim er hent á öruggan stað. Hellið ekki málningar- og hreinsiefnaleifum í niðurföll. Skilið efnaleifum og tómum umbúðum til endurvinnslustöðva.

Tæknilegar upplýsingar

Til notkunar: Utanhúss

Tegund: Akrýl (ONE Door & Window Tech), alkýðolía (Tinova Wood Base Oil)

Gljástig: 35

Litir: Allir

Yfirmálun við 23°C/50% raka: Tinova Wood Base Oil 24 klst; Tinova Primer Exterior 16 klst; ONE Door & Window Tech 4 klst

Þynning: Vatn

Verkfæri: Penslar, kústar, sprautur

Þekja: Tinova Wood Base Oil 4,5-5,5 m2/l; Tinova Primer Exterior 4-8 m2/l; ONE Super Tech 6-8 m2/l

Hreinsun: Sápuvatn

Geymsla: Í frostfríu rými

Tengdar vörur

Fleiri blogg

Nýmálað á Nönnustíg

Húsið við Nönnustíg á stutt í áttræðisafmælið. Þrátt fyrir það er húsið einstaklega glæsilegt eftir viðgerðir og málun í sumar.

Karfa

0
image/svg+xml

No products in the cart.

Continue Shopping